AroundMaps Logo
Search
Add Listing

About Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar & Þorsteins Bachmann

Á námskeiðinu er unnið með æfingar sem miða að því að tengja líkama og sál og virkja ímyndunaraflið.

Tags

Description

Á námskeiðinu er unnið með æfingar sem miða að því að tengja líkama og sál og virkja ímyndunaraflið. Við útdeilum tveggja manna senum á alla nemendur strax í öðrum tíma og skipum í hlutverk. Við kennum aðferð til að greina textann og fá hann til að verða hluta af líkamanum/sálarlífi persónunnar. Senan er síðan æfð og fá nemendur leikstjórn í tímum. Við förum jafnframt nokkuð ítarlega í aðferðafræði Mikael Chekhov hvað varðar upphitun, persónusköpun, samvinnu o.fl. Við setjum einnig fyrir heimaverkefni sem meðal annars felast í að hlusta á fyrirlestra og stúdera fólk. Kennt er á þriðjudögum frá 19.30 - 23.00. 6 skipti alls. Verð kr. 45.000
Öll nauðsynleg námsgögn innifalin.

Einkatímar: 2 tímar í senn í sex vikur eða eftir nánara samkomulagi. 80.000 per einstakling. 2 einstaklingar saman 110.000kr.

Magnús og Þorsteinn voru samferða í gegnum Leiklistarskóla Íslands og útskrifuðust þaðan vorið 1991. Báðir með áratuga reynslu af leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.

Um Magnús:
Magnús hefur leikið jöfnum höndum síðan hann útskrifaðist árið 1991. Hann var meðlimur Gus Gus frá 1994 til 1999. Gaf út einherjadisk árið 2000 og stefnir á hljómplötu sumar 2014. Hann hefur talsett bíómyndir, auglýsingar, haldið málverkasýningar og tónleika svo nokkuð sé nefnt. Meðal helstu leikhlutverka eru Siðameistarann í Kabarett í Óperunni. Logi Traustason í sjónvarpsþáttunum Réttur 1, 2 og 3 og Frank N. Furter í Rocky Horror.

Um Þorstein:
Þorsteinn hefur leikið vel á þriðja tug hlutverka í leikhúsi og hátt í 20 hlutverk fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Hann hefur einnig fengist töluvert við leikstjórn og var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar um skeið. Þorsteinn hefur haldið fjölda námskeiða í leiklist og kennt bæði við Leiklistarskóla Íslands og Kvikmyndaskólann. Meðal helstu hlutverka Þorsteins eru Steinn Elliði í Vefaranum mikla frá Kasmír, Gestur, fréttastjóri í Pressu og hlutverk Ara í kvikmyndinni Eldfjall.

Map

Add Reviews & Rate item

Your rating for this listing :