AroundMaps Logo
Search
Add Listing

About Nýhöfn

Eigendur Lögfræðistofu Reykjavíkur hafa tekið ákvörðun um að auka þjónustu við viðskiptavini sína með því að bæta fasteignamiðlun við starfsemina. Við höfum stofnað nýtt fyrirtæki, fasteignasöluna Nýhöfn. Þar er lögð áhersla á framúrskarandi þjónustu, ítrustu fagmennsku og nýjungar í fasteignamiðlun sem ætlað er að auka ánægju og öryggi viðskiptavina.\\Aukin fagmennska með aðkomu lögmanna\\Íslenskur fasteignamarkaður hefur þroskast mjög á undanförnum áratugum en við höfum trú á því að fagmennsku í greininni megi auka. Við erum sannfærð um að sú verði raunin með beinni aðkomu reyndra lögmanna eins og starfa hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur.\\Sterkt bakland til að skapa traust\\Ef þú átt í fasteignaviðskiptum getur þú notið traustrar og áreiðanlegrar þjónustu okkar. Við ætlum okkur stóra hluti með stofnun fasteignasölunnar. Nýhöfn leggur áherslu á frábæra þjónustu, nýjungar og persónulega ráðgjöf en grunnurinn liggur þó í sterku baklandi lögmanna Lögfræðistofu Reykjavíkur sem kemur viðskiptavinum Nýhafnar til góða.\\Hafðu endilega samband og láttu okkur aðstoða þig með fasteignaviðskiptin.
Social Link - Linkedin: http://www.linkedin.com/company/n%c3%bdh%c3%b6fn
Employee Count: 1
Keywords: real estate

Tags

Map

Add Reviews & Rate item

Your rating for this listing :

Help Us to Improve :

Location / Contacts :