About Verkfæri ehf
Verkfæri ehf var stofnað árið 2009 með þann tilgang að flytja vinnuvélar út frá Íslandi. Fljótlega breyttust áherslur og meiri kraftur var settur í innflutning á tækjum og vélum til landsins. Í dag starfar félagið í sölu og innflutningi á vélum, tækjum og búnaði fyrir bygginga- og jarðvinnuverktaka, framleiðslufyrirtæki, bæjarfélög og fleiri aðila. Félagið selur einnig vara- og fylgihluti auk ýmiskonar þjónustu.Verkfæri ehf. er umboðsaðili fyrir Merlo, Kobelco, Leica, Haulotte, Powerscreen, Terex, Clark o.fl. Félagið er einnig stór aðili í sölu og þjónustu á GPS búnaði fyrir jarðvinnuverktaka.Verkfæri ehf. flutti árið 2019 í nýtt og glæsilegt húsnæði í Tónahvarfi 3 í Kópavogi sem er 665 fermetrar. Í húsnæðinu er skrifstofuaðstaða, sýningarsalur og verkstæði. Á haustmánuðum ársins 2021 bætti félagið við sig 350 fermetra vörumóttöku og lagerrými í sama húsnæði. Húsakostur félagsins í Kópavogi er því rúmlega 1.000 fermetrar um þessar mundir.Fyrirtækið rekur einnig verkstæði á Dalsbraut 1 á Akureyri auk þjónustubíla og hefur fjölmarga samstarfsaðila á landsbyggðinni fyrir verkstæðisvinnu og nær þannig að veita þjónustu í flestum landshlutum.
Social Link - Facebook: https://www.facebook.com/verkfaeriehf.is
Social Link - Linkedin: http://www.linkedin.com/company/verkf%c3%a6ri-ehf
Social Link - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCNcZz0C_UYur2QEp_mYyNtA
Employee Count: 50
Keywords: machinery manufacturing