About níu restaurant & bar
Nýr og notalegur veitingastaður á Hótel Íslandi. Góð næring er grunnur að betri líðan og þess vegna eldum við allt frá grunni úr hágæða hráefni. Opið í hádeginu frá 12-14 og á kvöldin frá 16-23
níu restaurant & bar er staðsettur á Hótel Íslandi í Ármúla 9 og er hluti af Heilsumiðstöðinni. Í Heilsumiðstöðinni starfa nokkur heilsufyrirtæki saman að því að efla heilsu skjólstæðinga sinna og veita góða þjónustu og heildrænar heilsulausnir.
Heilsan þín skiptir okkur máli og við vitum að góð næring er grunnur að betri líðan. Þess vegna eldum við allt frá grunni úr hágæða hráefni. Við leggjum áherslu á prótein- og trefjaríka rétti, notum einungis fitu sem er góð fyrir þig og það hvarflar ekki að okkur að nota sykur, litarefni eða bragðefni.
Njóttu vel!